Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
þriðjudagur, febrúar 28, 2006
Semsagt...
#1 Ég, Sigrún Lilja, Eyrún, Gréta og Margrét María bökum (skv. Fjólu) #2 Allir mæta í búningi - nema Eyja sem verður nakin. Hlakka til :D Knúsípús Nielsen posted@ 2/28/2006 02:38:00 e.h.. $$$$$$$$ föstudagur, febrúar 24, 2006
Saumavélargellur landsins!
Það verður Saumavél í Skógarlundi 10 næstkomandi miðvikudag. Þar sem ég á ekkert líf og get ekki hóstað samkomu án skrípaláta verðum við að mæta í múnderingu í tilefni af öskudeginum (munið bara hvað þið hafið saknað mín áður en þið bölvið mér) Ég fékk ekki að berja Fjólu augum í hinum rómuðu GULLBUXUM og óska þess því af henni að mæta í þeim... t.d. væri tilvalið að vera hollenski hjólaskautalúðinn úr Osstinn Páers!!! Á einhver hjólaskauta handa dömunni? Ég skal baka... hverjar aðrar verða í þeim hlutanum? Hvernig verður mætingin? Knúsípús :D Nielsen posted@ 2/24/2006 11:26:00 f.h.. $$$$$$$$
Tíska á föstudegi
Geggjaðar peysur á þessari síðu; http://www.lesliehall.com/8-sweaters1.html Buxurnar minntu mig smá á þig fjóla ;) Hafið það gott um helgina!!!! Gudny posted@ 2/24/2006 11:15:00 f.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Guðný Birna - Nafna mín!!!
Þið eigið hrós skilið fyrir STÓRKOSTLEGA tónleika í gærkvöldi. Þetta var besta bland í poka af tónlist á öllum Klakanum. Það er ekki oft sem ég felli tár á tónleikum. Bravó!!! Ps: Jeff Who eru hottness on víííls Nielsen posted@ 2/23/2006 10:20:00 f.h.. $$$$$$$$ mánudagur, febrúar 20, 2006
Jæja stelpur...nú hvet ég ykkur til að mæta á magnaða tónleika og um leið styrkja gott málefni!
Baráttutónleikar Félag tónlistarnema efnir til styrktar- og baráttutónleika miðvikudaginn 22. febrúar á NASA á Austurvelli. Fram koma: · Stuðmenn · Páll Óskar og Monica · Diddú · Tómas R. Einarsson; ásamt Óskari Guðjónssyni o.fl. · Benni Hemm Hemm · Ragnheiður Gröndal · Reykjavík Beat Generation; Börkur og Daði · Kristjana Stefánsdóttir · B3 tríó, Ásgeir Ásgeirsson, Eric Quick og Agnar Már Magnússon · Hilmar Jensson · Jón Páll Bjarnason ásamt nemanda úr FÍH · Bardukha, Birgir Bragason og co. · Jeff Who Miðaverð 700 kr. Húsið opnar kl. 20, tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Félag tónlistarnema er nýstofnað hagsmunafélag með það markmið er gæta réttinda tónlistarnema. Tónlistarnemum er stórlega mismunað til tónlistarnáms eftir aldri og búsetu. Sveitafélögin hafa sett fram þær takmarkanir að þau greiða ekki með þeim nemum sem eru yfir 25 ára aldri (27 ára fyrir söngnemendur með lögheimili í Reykjavík). Reykjavíkurborg gefur reyndar tveggja ári aðlögunartíma fyrir sína íbúa. Einnig hefur samband sveitafélaga höfuðborgarsvæðisins ákveðið aðrar upphæðir kennslukostnaðar sem standast ekki samanburð við þær upphæðir sem Menntaráð Reykjavíkurborgar hefur reiknað út sem raunkostnað við kennslu nemanda eftir stigi og skóla. Félagið hefur lagt fram stjónsýslukæru á hendur Reykjavíkurborg og sambandi Sveitafélaga Höfuðborgarsvæðisins og mun hagnaður tónleikanna fara í málskostnað félagsins. Gudny posted@ 2/20/2006 12:41:00 e.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, febrúar 16, 2006
Já Guðný ég er alveg sammála þér með vorfílinginn og líka með Eurovisionpartýið þannig að ég skal halda Eurovisionpartý á laugardaginn:) Spurningaþátturinn sem er á undan byrjar kl. 19:40 og svo byrjar sjálf keppnin kl 20:10 þannig eigum við ekki bara að segja að mæting sé þegar fólk vill - ég verð heima;) Spurning hvort við eigum að hafa eitthvað þema? Kannski Til hamingju Ísland þema, hehe;)
Rikey Huld posted@ 2/16/2006 11:46:00 f.h.. $$$$$$$$ miðvikudagur, febrúar 15, 2006
Vorfílingur
Jeminn hve ég er komin í mikið vorskap...mig langar einna helst að fara bara útí leiki eins og maður gerði alltaf í den ;) Annars er komin þessi magnaða spenna fyrir söngvakeppninni á laugardaginn...ég veit að silvía nótt mun taka þetta :) Mér var svona að detta í hug hvort að við ættum að hafa islandiavisionparty saumavélarinnar??? Hvað segiði um það? Gudny posted@ 2/15/2006 12:45:00 e.h.. $$$$$$$$ föstudagur, febrúar 10, 2006
Já ég varð auðvitað líka að prófa... ég virðist líka hafa valið rétt.... en greinilega skora hátt í mörgu þ.a. ég ætti að gera margt ;)
Gudny posted@ 2/10/2006 03:47:00 e.h.. $$$$$$$$
Ég valdi greinilega rétt
Sigrun Lilja posted@ 2/10/2006 09:50:00 f.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, febrúar 02, 2006
Takk fyrir frábæran saumaklúbb....ég held að þetta hafi verið myndarlegasti saumaklúbburinn til þessa:) Jább næstum allar komu með handavinnuna sína með sér,hehe og myndarlegasta bumban mætti líka á svæðið. Svo er það bara spurning hvort að hún sé ennþá bumba?
Hlakka til að sjá næstu forkeppni fyrir Eurovision í sjónvarpinu. Ég heyrði lagið sem Silvía Nótt syngur áðan og fannst það bara gott. Það er samt spurning hvort að húmorinn falli í kramið hjá útlendingum. En ef að hún vinnur þá er kannski bara best að hún syngi á íslensku því þá skilur enginn neitt hvort eð er;) Rikey Huld posted@ 2/02/2006 02:55:00 e.h.. $$$$$$$$ |
Tenglar
Annað |