Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
föstudagur, október 27, 2006
Takk kærlega fyrir síðast þið sem að voruð í saumóinum hjá Guðnýju Birnu. Eins og venjulega þá át maður á sig gat af girnilegum kræsingum. Hér koma nokkrar myndir úr saumóinum þannig að þið sem ekki komust getið aðeins séð af nýju íbúðinni hennar Guðnýjar, sem er rosa flott og með alveg risa baðherbergi, alveg hægt að halda partý á baðinu:)
![]() Hafrún að hitta Daða í fyrsta skipti ![]() Gréta, Fjóla og Eyja voru í góðum gír, eins og sést:) ![]() Sylvía, Margrét og Sigrún Lilja ![]() Gleraugnaglámarnir Ríkey og Guðný Birna ![]() Eyrún og Hafrún ![]() Sylvía sá til þess að allir væru duglegir að fá sér Hlakka mikið til næsta hittings sem verður óvissuferðin mikla 4.nóv..........vííííí það verður svo gaman:) Rikey Huld posted@ 10/27/2006 10:53:00 f.h.. $$$$$$$$ mánudagur, október 23, 2006
Í saumó hjá Margréti ákváðum við að næsti yrði hjá Guðný B. og síðan hjá Sylvíu. Eigum við ekki að halda okkur við það, þ.e. saumaklúbbur á morgun 24.okt kl.20 hjá Guðný Birnu
Gosdeildin: Ríkey, Fjóla, Eyja, Guðný Birna, Margrét Kökudeildin: Guðbjörg, Sylvía, Sigrún L., Gréta, Eyrún Einhver mótmæli? ;) Sigrun Lilja posted@ 10/23/2006 11:16:00 f.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, október 19, 2006
Óvissuundirbúningurinn er nú í hámarki. Við í óvissunefndinni erum alveg orðnar hrikalega spenntar.
Dagurinn hefur fengið nafn: Hörpudagur. Þátttakendur í deginum eru: Fjóla, Gréta, Eyrún, Eyja, Sigrún lilja, Ríkey, Margrét, Guðbjörg, Guðný Birna og Sylvía. Dagsetning: 4. nóvember (áætlað er að byrja kl 10.00) en frekari upplýsingar um hvaða dót á að taka með og svoleiðis verður tilkynnt síðar. Áætlaður kostnaður: Milli 7000-8500 (kling kling - bling bling - $$$) Við erum búnar að ganga frá ýmsum dílum og vílum svo þetta er allt að smella og verða klappað og klárt. Við gefum engin hint...en verið tilbúnar að geta þurft að prófa eitthvað sem þið hafið aldrei gert áður. p.s. hafið þið nokkur farið í vesturbæjarlaugina? sylvia posted@ 10/19/2006 10:50:00 f.h.. $$$$$$$$ laugardagur, október 14, 2006
Saumaklúbbur oktobermánaðar!
Sælar skvísur Hvað segiði um saumó hjá mér á fimmtudaginn næsta??? Kv. Guðný Birna Gudny posted@ 10/14/2006 10:26:00 f.h.. $$$$$$$$ miðvikudagur, október 11, 2006
Þar sem að svo skemmtilega vildi til þá var ég með myndavél í síðasta saumó og smellti af nokkrum myndum. Ég ætla að setja nokkrar þeirra inn hérna fyrir útlendingana okkar:)
![]() Guðný Birna og Daði Berg ![]() Sylvía og Eyrún að spögulera:) ![]() Fjóla að segja Guðbjörgu sögu sem virkar mjög róandi á Grétu:) ![]() En Sigrúnu og Guðbjörgu finnst Fjóla fyndin;) ![]() Fjóla, Guðný og Daði í góðum gír ![]() Sigrún Lilja og Margrét ![]() Margrét að hella upp á dýrindis kaffi í nýju vélinni ![]() Margrét og fína vélin:) ![]() Sylvía bíður spennt eftir að smakka kaffið sem var btw alveg geggjað Sökum þess að hungrið náði síðan yfirhöndinni þá voru ekki teknar neinar myndir hvorki af veitingunum né af restinni af kvöldinu. Þessar myndir eru sem sagt allar frá því fyrir mat:) En þetta var kvöldið sem götulýsingin í Reykjavík var slökkt í 30 mín og auðvitað örkuðum við út að skoða myrkrið en eins og fyrr sagði þá gleymdist að taka myndir af því, alveg magnað hvað heilinn er sólginn í góðgæti frekar en að hugsa, hehe;) Rikey Huld posted@ 10/11/2006 02:30:00 e.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, október 03, 2006
Þessi póstur er til þeirra Saumavéla sem voru með mér í hópnum sem vann Arðsemismatsverkefnið fyrir Efri-Reyki í hagverkfræði-/verkefnastjórnunarkúrsunum. Minnir að þetta hafi verið Eyrún, Guðbjörg, Gréta, Rakel og Sigrún Lilja... (auðvitað megið þið hinar Saumavélarnar líka lesa)
Í fyrra var Eyrún svo ljúf að ljósrita fyrir mig verkefnið sem hún hafði í höndunum. Takk aftur Eyrún :) En, nú þarf ég að nota þetta verkefni í kynningu hér í skólanum og þá er solltið próblemm. Mig sárvantar það á tölvuformi. Ég leitaði í öllum mínum gögnum á háskólavefnum í fyrra, en ég hafði ekki vistað það á mínu svæði :( Gætuð þið elskulegu Saumavélar og hópmeðlimir athugað hvort þið finnið þetta hjá ykkur einhvers staðar? Þið mynduð bjarga mér. Ef þið finnið þetta þá er ég ekki lengur með háskólameilið, heldur nota ég núna ninaiceland@hotmail.com. Annars óska ég ykkur góðrar skemmtunar í yfirvofandi óvissuferð. Efast ekki um að skipulagningin sé í góðum höndum. Væri svo til að vera með ykkur. Knús knús og arigatoo :) Nielsen posted@ 10/03/2006 07:39:00 f.h.. $$$$$$$$ |
Tenglar
Annað |