Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
þriðjudagur, júlí 29, 2003
Hoj hoj piger!
Ammælið hjá Guðbjörgu var mjög fínt þó það hafi vantað helminginn af saumavélinni !!! ÞEtta var svona í rólegri kantinum, ég, Guðbjörg og Rakel (vínkona Guðbjargar) vorum einu sem vorum að drekka. Hafrún og Guðný voru þunnar eftir svakalegt vinnuskóladjamm, Sigrún og Ríkey voru að fara á næturvakt og Fjóla og Eyja voru bílandi. Ég stakk reyndar af um 23:30 þar sem ég var að fara í annað ammæli þ.a. ég veit ekki hvernig kvöldið endaði, allavega skemmti Guðbjörg sér vel á Hverfis;) Hvað á annars að gera um vitlausramannahelgina???? Ég er að fara á Ólafsfjörð með Hilmari að hitta familíuna, svo ætlum við að sjálfsögðu að kíkja á Akureyri, þar verður fullt af liði sem ég þekki þ.a. maður gistir e.t.v. eina nótt þar!!! Annars er bara 45 mín. að keyra á milli þ.a. það er ekkert svaðalegt. Býð svo Guðbjörgu og Guðný hjartanlega velkomnar á síðuna og skora á Eyrúnu, Hafrúnu og Sigrúnu Kr. að fara að koma inn á síðuna :) Boj boj Rakel posted@ 7/29/2003 12:41:00 e.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |