Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
fimmtudagur, september 25, 2003
Var að uppgötva hvað það er gífurlega langt síðan ég blograði síðast!
Skammast mín hálfpartinn! En, Sigrún Lilja - þú ert heldur betur dugleg. Jeij fyrir þér!!! Það er svosum ekkert svakamikið að frétta af mér. Það er búið að taka mig 3 vikur að losna við flensuna. Núna síðast í nótt vaknaði ég við skerandi sársauka í eyranu og var viss um að nú væri ég komin með eyrnabólgu. En... þegar ég vaknaði í morgun var hann horfinn... og þá fékk ég illan grun um að eitthvað kvikindi hefði borað sig inn í eyrað á mér.... oooojjjj! Annars svaf ég mun betur í gærnótt því mig dreymdi að ég væri tótalli að "meika át" með Chris Martin (söngvaranum í Coldplay). Ég man ekki allt en... hann átti kærustu og það var ekki Gvinneþþ. Það var líka hundur á staðnum, en ég man ekki hvort við vorum eitthvað sóðaleg með hann...? En, eins og allir góðir draumar enda - á fjandans vekjaraklukku! Ég trylltist úr pirringi og lagðist niður aftur og kreisti augnlokin aftur. Ég ætlaði að klára drauminn. En... allt kom fyrir ekki. Ennívei, nú ætla ég að hætta því annars nennir enginn að lesa blogrið mitt. Ástarkveðjur til ykkar allra. Saknaðarkveðjur til þeirra sem úti eru. Haldið áfram að vera villtar. Og Viktoría, farðu nú að fylla fimmtu rútuna og þá skal ég vera búin að læna upp mínívan handa þér hérna heima þegar þú kemur. Þar til næst... Nielsen posted@ 9/25/2003 11:29:00 f.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |