Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
mánudagur, október 04, 2004
Sælar
Ég er sko sammála Guðnýju Birnu með Oktoberfest. Það voru bara nánast allir sem maður þekkir eða þekkti þarna. Maður fékk bara hvert flashbackið á fætur öðru :). Í síðustu viku hef ég verið mjög upptekin við að fara í matarboð og hef þar af leiðandi borðað full mikið og varð því mjög ánæð þegar mér barast tölvupóstur í dag með titlinum, Ertu 20-40 ára og viltu grennast?. Þar sem svar mitt við þessari spurningu er já smellti ég á póstinn til að lesa hann. En að sjálfsögðu eru einhver skilyrði til að taka þátt og ég uppfylltu þau auðvitað ekki, (þ.e. var ekki nógu feit). Nú fer að líða að því að ég segi skil við VR 2 og fer yfir í læknagarð, það verður nú doltið skrýtið eftir alla þessa veru í VR 2. Á fimmtudaginn byrja ég í afnæmingu sem mun standa yfir næstu fjögur árin. Það á að gera tilraun til að losa mig við frjókornaofnæmið sem hefur gert mér lífið leit á sumrin. Ég verð ekkert smá ánægð ef vel tekst til :D. Bæjó spæjó Fjóla p.s. Miklar líkur eru á að ég hætti að skrifa vikulega inn á þessa síðu :). Fjola posted@ 10/04/2004 03:35:00 e.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |