Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
mánudagur, janúar 31, 2005
NÆSTA SAUMAVÉL!!!
Staður: Skógarlundur 10, Garðabæ Stund: Fimmtudagskvöldið 10. febrúar klukkan 20:00 Ég vil vekja athygli á að þessi Saumavél markar tímamót, því við erum nú loksins komnar HRINGINN! Fyrsta Saumavélin var haldin hjá mér vorönnina 2002. Til hamingju Saumavélardömur :) Tökum nýja hringinn með trompi. Í tilefni að þessum merku tímamótum verður þema á fimmtudaginn: Hringur/Hringar/í hring/að hringja/ hringormur/hringavitlaus/hringjarinn í Notre Dame/ (þið megið útfæra þetta eins og þið viljið). Ég tók það að mér að stokka upp hópinn því stór hluti er í úglöndum og í sveit. Við, í mínum helmingi, bjóðum því eðalskutluna Fjólu velkomna í hópinn! Ok, sjáumst í næstu viku, metmæting - metmæting! Hlakka til stúlkur! Nielsen posted@ 1/31/2005 06:38:00 e.h.. $$$$$$$$ laugardagur, janúar 29, 2005
Stelpudagar í bíó. Hvað segið þið um að skella sér í bíó á t.d. þriðjudagskvöld í næstu viku á Alfie?
Sigrun Lilja posted@ 1/29/2005 01:14:00 e.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, janúar 20, 2005
Sælar, sælar
Ætlaði bara að óska GRÉTU og stelpunum hennar í KR til hamingju með sigurinn í gær. Vonandi eru þær búnar að snúa við blaðinu og nú verði bara unnið eftir þetta :D. Bið að heilsa í bil, sjáumst hressar á kennarafagnaðinum :D! Fjóla Fjola posted@ 1/20/2005 10:02:00 f.h.. $$$$$$$$ miðvikudagur, janúar 19, 2005
Sælar, takk fyrir síðast. Það kom upp hugmynd að hætta þessu afmælisgjafa rugli og leggja frekar inná reikning 1000 kr á mánuði og skella sér til útlanda eftir 3 ár eða svo, hvernig finnst ykkur sem komust ekki? Ég reyni að fara á eftir að stofna reikning svo við getum byrjað strax í febrúar ef áhugi er fyrir því.
Nú eru aðeins tvær eftir að fá gjafir sínar og nokkrar búnar að gera allt upp. Eruð þið til í að greiða mér sem fyrst svo ég þurfi ekki að vera rukka mjög oft í viðbót. Einnig eru Fjóla og Guðný Birna í óvissuferðar nefnd sem verður einn dagur 3.hlegina í júní, er það ekki sniðugt líka? Sigrun Lilja posted@ 1/19/2005 09:38:00 f.h.. $$$$$$$$ laugardagur, janúar 15, 2005
Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Eyja, hún á afmæli í dag. Hún er 25 ára í dag, hún er 25 ára hún Eyja ..... Til hamingju með afmælið Eyja mín. Óli kemur með pakkann til þín eftir 4 daga :D. Hafðu það gott í dag, ég ætla bara að eiga inn hjá þér afmælisköku :). Knús og kossar Fjóla Fjola posted@ 1/15/2005 11:09:00 f.h.. $$$$$$$$ sunnudagur, janúar 09, 2005
Saumaklubbur sunnudaginn 16.janúar heima hjá Sigrúnu Lilju
Sigrun Lilja posted@ 1/09/2005 08:10:00 e.h.. $$$$$$$$ mánudagur, janúar 03, 2005
Gleðilegt nýtt ár allar og takk fyrir það gamla, hvað segist ætla ekki allar að mæta til Viktoríu?
Varðandi saumaklúbb hef ég ekki fengið mörg svör svo ég ætla bara stinga uppá að halda einn sunnudaginn 23. janúar ég veit að Ríkey og Hafrún verða farnar út en þar sem við hittumst 27.des og hittumst núna á föstudag finnst mér ekki vera þörf á því. En 23.des verður Guðný Nielsen komin til að segja okkur sögur frá Bandaríkjunum JEI. En Dóra ert þú ekkert að kíkja í bæin eða hvað? (m.a. vegna afmælisgjafar :)) Eitt einn vil minna ykkur á að leggja inná mig á: 0515-26-832737 kt.310781-2909 Jæja er þetta ekki orðið ágætt Sigrun Lilja posted@ 1/03/2005 07:39:00 e.h.. $$$$$$$$
Núna sit ég hérna heima hjá henni dóru hlín í aftakaveðri, ég átti pantað flug kl. 11:20 (því er amk frestað til kl. 14:30) og verður það að viðurkennast að ekki er útlit fyrir miklar samgöngur hérna í dag. Það verður nú að viðurkennast þó að það er nú bara ansi kósý að sitja inni undir sæng í svona veðri :)
Til ísafjarðar mætti ég á gamlársdagsmorgun í blíðskaparveðri, þrátt fyrir mjög vonda spá. Við dóra byrjuðum á því að versla og redda smástuffi fyrir kvartaldarafmælið hennar sem haldið var á nýársdag. Eftir reddingarnar var aðeins skellt sér uppí fjall á skíði, jih hvað það var gaman!! Það versta var að við náðum nú ekki löngum tíma þar sem að það fór að verða slatta hríð....en maður fékk allaveganna smjörþefinn af þessu og fékk tækifæri á að nota aðeins skíðin mín sem að haf því miður ekki verið mikið notuð síðan að ég keypti þau. Svo fór að líða að kveldi og þá var hent sér í sparigallann og í dýrindismáltíð heima hjá fjölskyldu dóru. Horft var á skaupið og sprengt upp heima hjá frænda dóru þar sem allt frændfólkið kom saman. Ég verð nú að segja að áramótaskaupið var nú bara heldur flott...og fólk var bara með góðann húmorð fyrir sjálfu sér!! Eftir skaupið fóru flestir út að sprengja, og gerðist það að ein rakettan skaust inní eldhús....sem betur fer varð enginn fyrir henni en prikið festist inní vegg. Síðan eftir partýið þá var nýja árinu fagnað í partýi. Á nýársdag var svo farið á fætur um hádegisbil og byrjað að gera ostapinna, snittur og allskonar fínheit fyrir ammælið hennar dóru og salurinn hafður til. Þetta var nú aldeilis flott ammæli hjá kellu...þetta var svona gala nýársfagnaður þar sem að allir mættu í sínu fínasta pússi. Veigarnar voru nú ekki litlar hjá henni dóru og var alveg heljarinnar fjör á staðnum. Um rúmlega sex um morguninn fórum við að tygja okkur heim á leið. Í gær vorum við svo heldur góðar við okkur og sváfum til rúmlega tvö skelltum okkur svo í tiltekt á salnum og fórum svo á brennuna sem hafði verið frestað á gamlárskveld. Jáh, þetta hafa aldeilis verið snilldarleg áramót!!! Enn er óvíst um heimkomu, en ég efast um að mér eigi eftir að leiðast enda nóg til dundurs. Sjáumst hressar á föstudaginn!!! Gudny posted@ 1/03/2005 09:35:00 f.h.. $$$$$$$$ |
Tenglar
Annað |