Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
mánudagur, janúar 03, 2005
Núna sit ég hérna heima hjá henni dóru hlín í aftakaveðri, ég átti pantað flug kl. 11:20 (því er amk frestað til kl. 14:30) og verður það að viðurkennast að ekki er útlit fyrir miklar samgöngur hérna í dag. Það verður nú að viðurkennast þó að það er nú bara ansi kósý að sitja inni undir sæng í svona veðri :)
Til ísafjarðar mætti ég á gamlársdagsmorgun í blíðskaparveðri, þrátt fyrir mjög vonda spá. Við dóra byrjuðum á því að versla og redda smástuffi fyrir kvartaldarafmælið hennar sem haldið var á nýársdag. Eftir reddingarnar var aðeins skellt sér uppí fjall á skíði, jih hvað það var gaman!! Það versta var að við náðum nú ekki löngum tíma þar sem að það fór að verða slatta hríð....en maður fékk allaveganna smjörþefinn af þessu og fékk tækifæri á að nota aðeins skíðin mín sem að haf því miður ekki verið mikið notuð síðan að ég keypti þau. Svo fór að líða að kveldi og þá var hent sér í sparigallann og í dýrindismáltíð heima hjá fjölskyldu dóru. Horft var á skaupið og sprengt upp heima hjá frænda dóru þar sem allt frændfólkið kom saman. Ég verð nú að segja að áramótaskaupið var nú bara heldur flott...og fólk var bara með góðann húmorð fyrir sjálfu sér!! Eftir skaupið fóru flestir út að sprengja, og gerðist það að ein rakettan skaust inní eldhús....sem betur fer varð enginn fyrir henni en prikið festist inní vegg. Síðan eftir partýið þá var nýja árinu fagnað í partýi. Á nýársdag var svo farið á fætur um hádegisbil og byrjað að gera ostapinna, snittur og allskonar fínheit fyrir ammælið hennar dóru og salurinn hafður til. Þetta var nú aldeilis flott ammæli hjá kellu...þetta var svona gala nýársfagnaður þar sem að allir mættu í sínu fínasta pússi. Veigarnar voru nú ekki litlar hjá henni dóru og var alveg heljarinnar fjör á staðnum. Um rúmlega sex um morguninn fórum við að tygja okkur heim á leið. Í gær vorum við svo heldur góðar við okkur og sváfum til rúmlega tvö skelltum okkur svo í tiltekt á salnum og fórum svo á brennuna sem hafði verið frestað á gamlárskveld. Jáh, þetta hafa aldeilis verið snilldarleg áramót!!! Enn er óvíst um heimkomu, en ég efast um að mér eigi eftir að leiðast enda nóg til dundurs. Sjáumst hressar á föstudaginn!!! Gudny posted@ 1/03/2005 09:35:00 f.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |