Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
fimmtudagur, apríl 28, 2005
Yo, yo girls :D!
Jæja nú er komið aftur að mínu vikulega bloggi og margt hefur á daga mína drifið síðan þá ;). Ég er ekkert smá sátt núna því hef ég lokið við að skila öllu af mér á þessari önn fyrir utan einn kúrs sem ég á eftir byrja á og klára, hann ætla ég bara að massa núna á næstu þremur vikum :). Mig langar að taka fram að ég fékk engu ráðið varðandi förðunina og greiðsluna sem ég fékk áður en ég kom fram í Íslandi í dag. Það var náttúrulega bara rugl hvað ég var máluð mikið, það var eins og ég væri á leiðinni á stór veiðar. En það má nú samt segja að það hafi einn stór fiskur bitið á hjá mér strax eftir þáttinn því þá bauð mér karlmaður sem hefur að minnsta kosti einu sinni verið kosinn kynþokkafyllsti maður Íslands far heim ;). Ég tók þessu að sjálfsögðu sem hann hefði verið að bjóða mér heim til sín ... hihihihihi. Nei, hann hefur nú væntanlega bara ætlað að vera almennilegur en ég vil frekar skilja þetta hinsegin :Þ. En ég þáði samt ekki boðið. Annars man ég ekki eftir neinum fréttum núna því ég er nú bara að reyna að ná mér eftir allar vöku næturnar að undanförnu og svo var ég svo heppin að ná mér í þessa skítapest og er því komin með hita, háls- og heyrnabólgu :D. Bið að heilsa ykkur í bil og ég er sko þokkalega til í djamm og aftur djamm :D! Þið sem eruð að fara í próf gangi ykkur sem allra best, ég skal senda ykkur alla mína próforku :). adios Fjóla Fjola posted@ 4/28/2005 06:37:00 e.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |