Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
fimmtudagur, apríl 21, 2005
Sælar skvísur!
Langaði bara aðeins að láta heyra í mér og leggja mitt af mörkum þar sem allar eru búnar að vera svo duglegar að skrifa. Greinilegt að próftímabilið er að byrja ;) Af mér er allt gott að frétta. Var á sviðaveislu með vinnunni í gær. Nei við vorum ekki að borða svið og svoleiðis mat ;) Heldur voru þetta allar deildirnar undir ákveðnu sviði,u.þ.b. 100 manns. Sem sagt matur og vín í boði en að sjálfsögðu er ég að fara að keppa í dag þ.a. ég var góð stelpa og var á bíl. Það hindraði mig samt ekki í að kíkja í bæinn og fara inn á staði sem já ég er nú bara ekki vön að fara inn á. Fórum fyrst á REX þar sem var bara e-ð fyrirsætufólk og gelgjur. Gaurarnir á staðnum voru í þvílíkum outfittum og með svaka greiðslur og stelpurnar mjög fyrirsætulegar e-ð. En við stoppuðum stutt við og skunduðum á Thorvaldsen, sem er nokkurs konar skemmtistaður Landsbankans. Þar var meðalaldur fólk töluvert hærri og lenti ég einmitt í því í röðinni að tvær blindfullar kellur voru að röfla um að þær gætu verið mamma mín eða jafnvel amma. Frekar fyndið. Alltaf fyndið að sjá eldra fólk vel í glasi ;) Á eftir er ég svo að fara út á flugvöll að sækja Hilmar minn. Hann er búinn að vera í æfingaferð í London baby og verður gaman að endurheimta hann :):):):) Hvað segiði svo um verkfræðidjamm bekkjarins eftir próf??? Er ekki kominn tími á svoleiðis. Mér finnst byggingarfólkið sem var á sama ári og við alltaf vera með partý. Við getum nú ekki verið minni konur og menn ;) Gangi ykkur rosalega ofsalega vel í prófunum þær sem eru á leiðinni... Rakel posted@ 4/21/2005 11:32:00 f.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |