Was up???

Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði......

mars


18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu

Eldra dót

  • júlí 2003
  • ágúst 2003
  • september 2003
  • október 2003
  • nóvember 2003
  • desember 2003
  • janúar 2004
  • febrúar 2004
  • mars 2004
  • apríl 2004
  • maí 2004
  • júní 2004
  • júlí 2004
  • ágúst 2004
  • september 2004
  • október 2004
  • nóvember 2004
  • desember 2004
  • janúar 2005
  • febrúar 2005
  • mars 2005
  • apríl 2005
  • maí 2005
  • júní 2005
  • júlí 2005
  • ágúst 2005
  • september 2005
  • október 2005
  • nóvember 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • júní 2006
  • júlí 2006
  • ágúst 2006
  • september 2006
  • október 2006
  • nóvember 2006
  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • desember 2008
  • fimmtudagur, júní 30, 2005

    Sælar Stúlkur!
    Ég vildi bara þakka fyrir mig í útskriftinni minni...þið voruð æðislegar og redduðu mér alveg...
    knús og kossar
    Viktoría

    Viktoría posted@ 6/30/2005 07:23:00 f.h..

    $$$$$$$$

    þriðjudagur, júní 28, 2005

    Gef frest til kl. 12:00 á morgun til að kommenta á Þingvallahugmyndina.
    Þá ætla ég að senda á alla meil og auglýsa Útileguna 2005 á Þingvöllum.
    Vonandi taka þá fleiri í þetta og mæta.
    Þar til þá, knús :D

    Nielsen posted@ 6/28/2005 03:54:00 e.h..

    $$$$$$$$

    Ok, eru allir að digga Þingvelli???
    Nú verður þetta ákveðið vonns end for oll.
    Kjósið takk.
    Pís át!

    Nielsen posted@ 6/28/2005 08:21:00 f.h..

    $$$$$$$$

    mánudagur, júní 27, 2005

    Smá Konfjúsjón í gangi!
    Frétti að rætt hefði verið um breytingu á "Fyrstu-helginni-í-júlí"-planinu okkar.
    Er það rétt??
    Ég styð eitthvað stutt frá - jafnvel bara Þingvellir!!!
    Kommentiði vinsamlegast, Guðný :D

    Nielsen posted@ 6/27/2005 10:34:00 f.h..

    $$$$$$$$

    föstudagur, júní 24, 2005

    Hó hó - Vil endilega fá ykkur í útskriftarveisluna okkar Þórólfs heima hjá mér í Skógarlundi 10 á laugardag kl. 18:00.
    Engar gjafir takk, en knús til allra.
    Vonast til að sjá ykkur allar :D

    Nielsen posted@ 6/24/2005 10:31:00 f.h..

    $$$$$$$$

    fimmtudagur, júní 23, 2005

    sælar stúlkur!
    ég ætlaði bara að minna á útskriftarveisluna mína og segja að hún mun sennilega eitthvað standa fram eftir og endar þar af leiðandi sennilega í léttu partýi...þannig be prepared;)
    Sjáumst á laugardaginn
    kv.
    Viktoría

    Viktoría posted@ 6/23/2005 06:40:00 e.h..

    $$$$$$$$

    Sælar!
    Hér koma nokkrar vísur sem urðu til í ferðinni ... það leynast greinilega geggjað góð skáld á meðal vor :). Þetta er smá lýsing á því sem gerðist í ferðinni fyrri daginn. Seinni dagurinn er alveg eftir og við skorum á ykkur :D.

    Sylvía sótti Dóru
    um síðir loks hún sást
    til Esso fljótt þær fóru

    fljóð við að kljást

    Í göngin hér við ökum
    allt er hér svo dimmt
    draugar dyljast mökum
    dámar mér svo grimmt


    Að kveðast á við kunnum
    kostar mikill er
    við á rassinn eilítið runnum

    við að rata um okkar sker

    Á Akurnesi við lentum
    opnuðust augu okkar þá
    er skilti við sáum og bentum

    skjótt við fórum þar frá

    Á Stykkishólm svo brunuðum
    svolítið seinar að vanda
    kajakinn kannski grunuðum

    kepptumst milli stranda

    Fyrir líkama Guðnýjar luktust ei dyr
    laglegur barmurinn brosti
    tíguleg typpi fengu byr

    í tilkomu miklu losti

    Þreminingum tókst að þegja
    þó við værum á leið til eyja
    yngri og eldri baráttu heyja

    aftaka veður milli meyja

    Kveðja
    Stuðbíllinn ;)

    Fjola posted@ 6/23/2005 05:00:00 e.h..

    $$$$$$$$

    mánudagur, júní 20, 2005

    Hvað segið þið - hvurnig get ég sett tengil???

    Nielsen posted@ 6/20/2005 09:04:00 e.h..

    $$$$$$$$

    fimmtudagur, júní 16, 2005

    Komið nú að kveðast á
    kastið af ykkur drápu.
    Saumakonur fara á stjá
    en sjá af allri sápu.

    sylvia posted@ 6/16/2005 11:11:00 f.h..

    $$$$$$$$

    miðvikudagur, júní 15, 2005

    Í sælu sveitar við örkum brátt
    dætrum sjómanna langt í frá
    með gleði í hjarta, hamingju og sátt.
    höldum við burt í óvissuþrá.

    Um mildan morgun rísum við
    mér þykir helst til snemma
    en vor frægðarför ei þolir bið
    og sterk er morgunandremma

    Hvert verður farið hvað verður gert?
    hugmyndir, spurningar vakna.
    Eitt er þó víst og mest um það vert
    vissar fimm, ei hver annarrar sakna.

    sylvia posted@ 6/15/2005 10:40:00 e.h..

    $$$$$$$$

    Bíla- og tjaldamál

    jæja skvísur!!! Við þurfum nú eiginlega að fara að fá á hreint að það verði nóg af bílum og tjöldum. Þurfum ekki nema þrennt af hverju og ég er búin að redda einu af hvoru. Ég veit að allar familíur eiga nú amk 1 stk tjald og það hljóta e-rjar tvær fyrir utan mig að geta verið á bíl.

    Nú skulum við bara ganga frá þessu og magna spennu fyrir laugardaginn. Ég er farin að hlakka alveg svakalega...enda veit ég að þetta verður SVAKA-STUÐ!!!

    Yfir og út
    Guðný Birna Mega-ferðaplanner

    P.s. enginn þarf að hafa áhyggjur af bensíni...það er inní kostnaðnum gert ráð fyrir því og bílsstjórarnir fá þann pening :)

    Gudny posted@ 6/15/2005 10:24:00 f.h..

    $$$$$$$$

    föstudagur, júní 10, 2005

    Dönnuð Saumavél heima hjá Sylvíu í kvöld.
    Rauðvínshugmyndin var ekki baun í bala blásin af svo ég vil stinga upp á því að einhverjir hópi sig saman og kaupi eina til tvær flöskur (bara e-ð ódýrt rauðvín, samt drekkanlegt - við erum jú dömur).
    Geta DRYKKJAR-bringarar Saumavélarinnar í kvöld hugsað sér að koma með flösku? Bara nokkrar, svo koma hinar með gos eða þvíumlíkt.
    Getiði vinsamlegast póstað komment svo við í MATAR-bringara hlutanum getum sirkað út??
    Knús í krús og rauðvínsdollu, Guðný :D

    Nielsen posted@ 6/10/2005 11:55:00 f.h..

    $$$$$$$$

    Sælar Skvísur
    Í tilefni af útskriftinni minni ætla ég að halda smá boð og er ykkur boðið. Það verður 25.júní og byrjar það kl. 18:00....
    ÉG vona að sjá sem flestar:)
    kv.
    Viktoría

    Viktoría posted@ 6/10/2005 08:02:00 f.h..

    $$$$$$$$

    fimmtudagur, júní 09, 2005

    Hei skvísur!

    Er e-r ykkar sem vantar aukavinnu í sumar. Skúringar alla virka daga, ca 2-3 tímar í senn. Góð laun. Hafiði þá samband við mig í síma 820-6709.

    Vantar manneskju sem fyrst.

    Rakel posted@ 6/09/2005 01:08:00 e.h..

    $$$$$$$$

    Þá er bara að bretta upp ermarnar og henda í eitthvað almennilegt og það ekki seinna en á morgun. Stemmarinn fyrir saumó er gríðarleg. Var samt að vonast til að geta verið búin að klippa sjómannadaginn en það myndband fær að bíða betri tíma...

    Lítill fugl hvíslaði því að mér að veitingarnar myndu fara vel með rauðvíni svo ef einhverjar eru í stemmingu þá er bara að kippa einni með svona á föstudegi.

    Boðagrandi 4 á morgun kl. 8

    kveðja
    Stýrimaðurinn

    sylvia posted@ 6/09/2005 11:23:00 f.h..

    $$$$$$$$

    miðvikudagur, júní 08, 2005

    Hæ Róðrarmeistarar & Co.
    Nú þarf að skipuleggja næstu Saumavél.
    Hvernig líst ykkur á fimmtudag/föstudag?
    Sylvía stakk upp á "Ostum og rauðvíni" á föstudagskvöld heima hjá sér (skilst mér, leiðréttu mig Stýrimanna-Sylvía ef ég er að rugla).
    Annars ef einhver getur haldið á fimmtudag, vinsamlegast bjóðið ykkur fram. Smá þurrð.
    Einhver, einhver???
    Knúsípús - Ári sex

    Nielsen posted@ 6/08/2005 03:06:00 e.h..

    $$$$$$$$

    þriðjudagur, júní 07, 2005

    Hola hola
    Ég er búin að setja upp myndasíðu slóðin er photos.yahoo.com/fjolaspola.
    Er búin að setja inn myndir frá Þýskalandi.
    adios
    Fjóla

    Fjola posted@ 6/07/2005 06:04:00 e.h..

    $$$$$$$$

    mánudagur, júní 06, 2005

    Stjörnur
    kíkið á sjö fréttirnar í gær á rúv að færa sjómannadaginn
    þar sjást sko öldurnar.
    Vá við erum sko frægar
    Einnig lítil mynd í mogganum

    Sigrun Lilja posted@ 6/06/2005 11:14:00 f.h..

    $$$$$$$$

    sunnudagur, júní 05, 2005

    Jæja stelpur, hvernig gekk svo í róðrakeppninni? Ég er búin að bíða spennt að heyra fréttir:)
    Voruð þið með gula hatta? Ég var nebbla að skoða fréttatímann áðan á netinu og ég sá eitthvað lið með gula sjóhatta og datt í hug að það væruð þið. Fannst reyndar fréttirnar ekki segja nógu mikið frá þessu. Átti eiginlega von á viðtali við ykkur, fannst það alveg við hæfi. En segið frá;)

    Rikey Huld posted@ 6/05/2005 08:20:00 e.h..

    $$$$$$$$

    föstudagur, júní 03, 2005

    2 dagar í alvöruna !!!!!!!!!

    vívívvíví.....

    Rakel posted@ 6/03/2005 03:47:00 e.h..

    $$$$$$$$

    Tenglar


    Viktoría
    Eyja Peyja
    Guðný Birna
    Ríkey
    ZhaWorldTrip
    Guðný Nielsen
    Fjóla
    Sylvía
    Gréta

    Annað


    Vélin
    Maximus
    Google
    Að tjá sig

    <