Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
fimmtudagur, júní 23, 2005
Sælar!
Hér koma nokkrar vísur sem urðu til í ferðinni ... það leynast greinilega geggjað góð skáld á meðal vor :). Þetta er smá lýsing á því sem gerðist í ferðinni fyrri daginn. Seinni dagurinn er alveg eftir og við skorum á ykkur :D. Sylvía sótti Dóru um síðir loks hún sást til Esso fljótt þær fóru fljóð við að kljást Í göngin hér við ökum allt er hér svo dimmt draugar dyljast mökum dámar mér svo grimmt Að kveðast á við kunnum kostar mikill er við á rassinn eilítið runnum við að rata um okkar sker Á Akurnesi við lentum opnuðust augu okkar þá er skilti við sáum og bentum skjótt við fórum þar frá Á Stykkishólm svo brunuðum svolítið seinar að vanda kajakinn kannski grunuðum kepptumst milli stranda Fyrir líkama Guðnýjar luktust ei dyr laglegur barmurinn brosti tíguleg typpi fengu byr í tilkomu miklu losti Þreminingum tókst að þegja þó við værum á leið til eyja yngri og eldri baráttu heyja aftaka veður milli meyja Kveðja Stuðbíllinn ;) Fjola posted@ 6/23/2005 05:00:00 e.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |