Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
mánudagur, nóvember 28, 2005
Ég var að skoða nýja leitarvefin Emblu sem er hluti af mbl.is og rakst á þetta:
http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=3364 Þetta er föstudagssvar sem þýðir að alvaran er ekki mikil og þar af leiðandi mjög fyndin grein. kv. Sigrún Lilja Sigrun Lilja posted@ 11/28/2005 11:42:00 e.h.. $$$$$$$$
Ég fór á sigurrós tónleikana og þeir voru algjör snilld. Mæli með að allir drífi sig einhvern tíman á tónleika með þeim. Þeir voru með mikið ljósa show með sem gaman hafði verið að sjá en þar sem ég er undir 160 cm þá var það mjög takmarkað.
Hljómsveitin amina hitaði upp, þær voru líka æðislegar, spiluðu á glös og sög. Mæli með þeim líka. Það var svolítið hlegið að mér þegar ég sagði hissa í lok tónleika þeirra: "þær eru fjórar", (sá aldrei nema þrjá kolla fyrst). En svona til að summa upp, ef þú ert undir meðalhæð drífðu þig á tónleika með sigurrós er algjörlega þess virði þó að þú sérð ekki hljómsveitina. ;) Sigrun Lilja posted@ 11/28/2005 10:33:00 f.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, nóvember 22, 2005
AMMÆLIS-PARTÝ
Í tilefni kvartaldarammælisins ætla ég að bjóða ykkur skvísum í smá samkuntu að heimili mínu á Hringbraut 1 á laugardaginn 26. nóvember. Húsið opnar um níu-leytið og verður bolla í boði fyrir stuðpinna og e-ð létt snarl :) Vonast til að sjá sem flestar Kveðja Guðný Birna "ellismellur" Gudny posted@ 11/22/2005 06:39:00 e.h.. $$$$$$$$
Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Guðný Birna, hún á afmæli í dag, Veiveiveiveiveiveivieveieviveievi...... Til hamingju með daginn Guðný Birna:) Rikey Huld posted@ 11/22/2005 12:15:00 e.h.. $$$$$$$$ mánudagur, nóvember 21, 2005
Svona svona smá grín á mánudegi;)
PartítröllÞú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur. Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu. Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er. Hvaða tröll ert þú? Rikey Huld posted@ 11/21/2005 02:04:00 e.h.. $$$$$$$$ laugardagur, nóvember 19, 2005
Þar sem ég er mikill aðdáandi Sex and the city ákváð ég að skella inn prófi um hver maður er í þeim þáttum ... ég hefði nú búist við að fá einhverja aðra en Samanthu ... hehehehe
You Are Most Like Samantha! Fjola posted@ 11/19/2005 11:53:00 f.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, nóvember 17, 2005
Ég held ég sé búin að ákveða hvað verður í verðlaun ;) ...
verðlaunin fara eftir því hvort sú sem vinnur sé á laus eða ekki :p ... og að sjálfsögðu verður þetta e-ð tengt því sem bachelorinn fjallar um :) knús knús Fjóla Fjola posted@ 11/17/2005 04:44:00 e.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, nóvember 15, 2005
Saumó
Jæja ég veit því miður ekki nema um 3 sem ætla að mæta á mið....nenniði að láta hinar vita ef að þetta er að fara framhjá þeim. Ég því miður hef svo lítinn tíma að ég myndi alveg þiggja ef að við myndum deila veitingunum eins og hefur alltaf verið áður eða panta pitsu eða e-ð.....held bara að ég nái því ekki öðruvísi. Endilega látið vita um þátttöku svo að við vitum hvort að það verði að þessu eður ei Kveðja Guðný Birna Gudny posted@ 11/15/2005 08:20:00 f.h.. $$$$$$$$ sunnudagur, nóvember 13, 2005
Hæ hæ sætasti og bestasti saumaklúbbur í heimi!!!! Ég verð að fá hitting um jólin. Sko ég legg til að við tökum frá einhvern dag milli jóla og nýárs og gerum eitthvað saman. Brunch, jólaglögg, jólahlaðborð, kaffihús, dekur, skauta...eða bara eitthvað.
Ef við tökum einhvern tíma frá sem að sem flestar komast (fyrir utan þær sem eiga það stórar fjölskyldur og erum í jólaboðum frá morgni til kvölds ÖLL jólin)sem fyrst þá er hægt að negla þetta fast. Það er svo oft sem plönin milli jóla og nýjárs vilja fara út um þúfur... en með smá verkfræðilegu innsæi treysti ég saumavélinni í þetta. Hvað segið þið stelpur? saumavélarþrárskveðja úr stórborginni sylvia posted@ 11/13/2005 02:39:00 e.h.. $$$$$$$$ laugardagur, nóvember 12, 2005
Smá mistök
ég er ekki alveg með réttu ráði þessa dagana....ég nefnilega á að vera að syngja á tónleikum þetta kvöld sem að ég bauð ykkur í saumó!! Spurning með miðvikudaginn, ég er reyndar á æfingu til átta en við gætum bara hist hálf níu!!! Hvað segiði um það? kveðja Guðný Birna kú kú in ðe kókónött Gudny posted@ 11/12/2005 10:38:00 f.h.. $$$$$$$$ föstudagur, nóvember 11, 2005
Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún viktoría, hún á afmæli í dag Til hamingju með daginn Sigrun Lilja posted@ 11/11/2005 09:26:00 f.h.. $$$$$$$$
saumaklúbbur
jæja stelpur mér var að detta í hug að halda saumó á þri....hverjar komast?????? svo þurfum við að ákveða hvernig þetta á að vera, hvort að ég eigi ein að sjá um þetta eða hvort að við eigum að skipta þessu niður!!!! Endilega látið vita um þáttöku Kveðja Guðný Birna Gudny posted@ 11/11/2005 09:15:00 f.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, nóvember 10, 2005
Það vantar ennþá stelpur í dansinn, það er vægast sagt ógeðslega gaman.
Ef þú varst einu sinni í dansi og langar aftur þá er þessir tímar upplagðir fyrir þig. Líka ef þig hefur alltaf dreymt um að dansa en hefur aldrei leyft þér það þá eru þessir tímar fyrir þig. Salurinn er stór þ.a. ekkert vandamál með plásleysi, ekkert bílastæðavesen, engir strákar eða litlar stelpur með unglingaveiki til að pirrast yfir. Þið í saumavélinni og aðrar sem lesið bloggið okkar komið endilega í prufutíma þetta er svo gaman. www.hreyfiland.is Sigrun Lilja posted@ 11/10/2005 11:22:00 f.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, nóvember 08, 2005Hann sveik mig ... hver hefði getað trúað því ;)! Ég var að frétta það að Vilhjálmur prins ætti kærustu sem hann hefur meira að segja kynnt fyrir ömmu sinni, Elísabetu drottingu. Þannig ég álít að nú sé mín von úti :( ... hann s.s. sveik mig bölvaður ;) ... fyrst sveik Friðrik krónprins mig og svo hann Villi hvar endar þetta ... :p ... þeir greinilega vita ekki af hverju þeir eru að missa ;). Fjola posted@ 11/08/2005 02:41:00 e.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, nóvember 03, 2005Verð að viðurkenna að ég átti ekki alveg von á að ég líktist þessum fræga leiðtoga;) Rikey Huld posted@ 11/03/2005 01:02:00 e.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, nóvember 01, 2005
Femin er núna komin með saumaklúbbaleik:
http://www.femin.is/article.asp?art_id=3553 Við getum unnið gistingu á Hótel Búðum, nammi frá Mónu, diet coke, Amarula Cream líkjör, föndur eitthvað, miða á tónleika í loftkastalanum. Hvernig er þetta eigum við ekki að skrá okkur? Guðný N. áttu e-mailið sem þú sendir létt ennþá, ágætt að nota það aftur hér? Sigrun Lilja posted@ 11/01/2005 10:12:00 f.h.. $$$$$$$$ |
Tenglar
Annað |