Was up???

Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði......

mars


18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu

Eldra dót

  • júlí 2003
  • ágúst 2003
  • september 2003
  • október 2003
  • nóvember 2003
  • desember 2003
  • janúar 2004
  • febrúar 2004
  • mars 2004
  • apríl 2004
  • maí 2004
  • júní 2004
  • júlí 2004
  • ágúst 2004
  • september 2004
  • október 2004
  • nóvember 2004
  • desember 2004
  • janúar 2005
  • febrúar 2005
  • mars 2005
  • apríl 2005
  • maí 2005
  • júní 2005
  • júlí 2005
  • ágúst 2005
  • september 2005
  • október 2005
  • nóvember 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • júní 2006
  • júlí 2006
  • ágúst 2006
  • september 2006
  • október 2006
  • nóvember 2006
  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • desember 2008
  • fimmtudagur, desember 15, 2005

    Stjörnumerkin í rúminu...
    Bara varð að skella þessu hérna inn, stal þessu af síðu hjá frænda mínum ...
    Hrútur(21.mars - 19.apríl)
    Hrúturinn nálgast kynlífið eins og allt annað í lífinu: hvatvís og kappsfullur. Hann er opinn fyrir öllu en elskhugi hans ætti ekki að spyrja hann um morgundaginn því hann er ekki fyrir kynferðislega einokun.
    - Sængurver úr silki eða satín eflir hvatir hrútsins
    - Rómantískur, ástríðufullur, kynferðislegur og lostafullur
    - Kröfuharður og fyrir honum er rúmið orustuvöllur nánast
    - Elskhugi hrútsins þarf að þola sálrænt ástand og geta sætt sig við þá orku sem fylgir reiði og ákveðni og ekki síður orku ástarinnar
    - Líkar vel að skreyta rúmið með óteljandi púðum
    - Næmur, heiðarlegur og hefur óbeit á uppgerð í rúminu
    - Þolir ekki að láta sér leiðast- Hann er hvetjandi og drífandi.
    - Hann tilheyrir eldmerki: trygglyndur og örlátur á atlot og strokur
    - Hann þarfnast félaga sem er jafn ákveðinn og hann í rúminu
    Vatnsberi(20.jan - 18.feb)
    Vatnsberinn þarf fyrst og fremst þolinmóðan, skilingsríkan og hlýjan bólfélaga. Rúmið þarf að uppfylla væntingar hans svo hann fái notið sín.
    - Hræðist náin kynni.
    - Feiminn en auðmjúkur
    - Hann er yfirleitt feiminn
    - Svolítið tilbaka í persónulegum samskiptum
    - Fæstir komast í gegnum skelina og kynnast honum náið
    - Hógværð hans er heillandi í rúminu
    - Á erfitt með að vera opinnn og óheftur í rúminu
    - Laðar að sér fólk sem hann þráir, slík er hugarorka vatnsberans
    - Vill deila miklum tíma með elskhuga sínum í rúminu
    - Getur verið allt með elskhuga sínum; jafningi, ástmaður, kennari, einlægur vinur og bólfélagi
    Fiskur(19.feb - 20.mars)
    Fiskurinn er stórkostlegur elskhugi svo lengi sem honum finnst hann vera verndaður tilfinningalega og elskaður alla leið. Vandræðin hljótast eingöngu ef fiskurinn elskar sjálfan sig ekki nóg.
    - Dularfullur, fallegur, rómantískur í rúminu
    - Oft flæktur í eigin tilfinningar og nær því ekki að einbeita sér nóg
    - Á það til að forðast velgengni og eyðir lifi sínu í dagdrauma.
    - Gæddur mjúkum, rafmögnuðum ákafa eins og nýtur þess að kúra
    - Nýtur þess að láta drottna yfir sér (í rúminu) en stefnir um leið að því að hafa stjórn
    - Vill að kynlífið sé skemmtilegt, margslungið og tilbreytingaríkt
    - Kynlífið er könnunarferð í huga fisksins
    - Hann leitar að sameiningu ástar og kynlífs með elskhuga sínum
    - Leitar eftir samböndum sem fylla hann von og ást
    - Hann heldur tryggð við konuna sem hann fellur fyrir
    Krabbi(22.júní - 22.júlí)
    Krabbinn er feiminn en hefur ríka kynhvöt.Kynlíf er krabbanum kjarni lífsins og tal hans, lykt, matargerð og bros geisla af kynþokka
    - Hart rúm stuðar krabbann nánast
    - Vill sökkva með elskhuga sínum inn í nóttina áhyggjulaus og frjáls
    - Næmur á fólk og umhverfið og kýs þess vegna snyrtilegt mjúkt rúm
    - Næmi og innsæi hans eru slík að hann er mjög viðkvæmur fyrir rúminu
    - Allra manna þolinmóðastur í rúminu
    - Ástarvef sinn vefur krabbinn fínlega og dramatískt í rúminu
    - Púðar skipta engu máli heldur þarf rúmið að vera hreint og fallega búið
    - Flekandi og föðurlegur í samskiptum við elskhuga sína
    - Leitast við að prófa sig áfram í rúminu
    Ljón(23.júlí - 22.ágúst)
    Stærsta vandamál ljónsins er óraunhæfar væntingar í rúminu. Það vill hart stórt rúm og kýs helst að sofa,lesa,elskast og borða í rúminu allan sólahringinn.
    - Geislar af sjálfsöryggi og reisn í rúminu (sjálfsöryggið ómótstæðilegt).
    - Getur verið ákaflega kröfuhart við elskhuga sinn og jafn örlátt
    - Svo fremi sem því finnst það vera elskað eða eftirsótt þá er það nokkuð öruggt í rúminu
    - Þegar það er ástfangið reynir það í sífellu að sigrast á tregðu sinni til að leggja eitthvað á sig fyrir aðra
    - Kýs tvær sængur því það gefur ekkert eftir í svefni og vill helst hafa sængina milli læranna- Ljónið þarf ástvin sem skilur eigin væntingar varðandi athafnir í rúminu svo hann geti aðstoða það við að verða meðvitað um sínar
    - Elskhugi ljónsins þarf að búa yfir óbugandi þolinmæði í rúminu
    - Auðmýkt ekki til í ljóninu
    - Með skjalli er hægt að láta það gera hvað sem er í rúminu
    Naut (20.apríl - 20.maí)
    Nautið þarf þægilegt rúm og elskhuga sem endurspeglar styrk þess og tilfinningalegan stöðugleika í rúminu.
    - Ímyndunarafl er óþarft ef nautið er ánægt
    - Mjög rómantískt og viðkvæmt
    - Blítt, fálátt og feimið í rúminu
    - Þægindi og ánægja skipta nautið miklu máli og þá eru þægilegir koddar mikilvægir
    - Staðfast og heimakært og kýs því þægilegt rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag
    - Er mjög gefandi í samskiptum við elskhuga sinn í rúminu
    - Það er opið til líkama, sálar og anda
    - Þegar því líður vel í rúminu gefur sig allt
    Tvíburar(21.maí - 21.júní)
    Skilmálar í rúminu er eitthvað sem tvíburinn hreinlega þolir ekki. Hann er hamingjusamastur þegar hann elskar og nær að hvílast vel.
    - Skemmtilegur og örvandi í rúminu
    - Honum verður aldrei orðavant þegar elskhugi hans nennir að kjafta alla nóttina
    - Mjög heillandi elskhugi og tillitssamur svo lengi sem hans helmingur(írúminu) stendur óáreittur
    - Hann hefur mikið skopskyn og hnittni hans og töfrar eru á við forleik í rúminu
    - Þráir að vera elskaður af ákafa og veltast um rúmið ef plássið leyfir
    - Tvíburanum er vel við börn og þarf stórt rúm svo öll fjölskyldan geti sofið þar
    Meyja(23.ágúst - 22.sept)
    Meyjan verður að fá að sofa út þegar hún er þreytt til að geta blómstrað í rúminu. Kröfuharkan verður nánast engin þegar hún sefur í góðu rúmi.
    - Hreinleg og ástríðufull
    - Rómantískur og gefandi þegar ástarleikurinn hefst
    - Það líkist töfrabrögðum svo kynþokkafull er meyjan í svefni jafnt sem vöku
    - Meyjan álítur snertingu eðlilegan þátt í rúminu
    - Hún erir mjög miklar kröfur og leitar alla tíð að fullkomnun í rúminu
    - Aðeins þrá meyju eftir ástarævintýri jafnast á við mikla forvitni hennar
    - Hann er innilega forvitin í rúminu
    - Þarf elskhuga sem vill eiga auðugt og spennandi kynlíf
    - Þarf elskhuga sem er frjáls til líkama og sálar
    - Þarf elskhuga sem er örugg með kynlífstækni sína í rúminu
    Vog(23.sept - 23.okt)
    Elskhugi vogar verður að vera þolinmóður og skiliningsríkur og viðurkenna þörf hennar fyrir aðdáun og blíðu í rúminu.
    - Þegar vogin hefur fundið ástina er ekki aftur snúið
    - Undanlátssöm í rúminu
    - Kýs að þóknast öðrum en getur líka verið ákveðin í rúminu
    - Leitar í sífellu að fyrirmyndar elskhuga í rúminu og þegar hún finnur hann er hún sátt að eilífu
    - Nákvæm og vandlát í rúminu
    - Henni er illa við hirðuleysi og vill því að rúmið sé snyrtilegt og vel búið um
    - Illa við einveru og kýs að hafa einhvern hjá sér öllum stundum upp í rúmi
    - Kýs ástvinu sem getur nært hana á tilfinninga- og kynferðislega sviðinu í rúminu
    Sporðdreki(24.okt - 21.nóv)
    Sporðdrekinn nær taki á elskhuga sínum með persónutöfrum sínum,dýpt og þrautseigju í rúminu.
    - Stjórnsamur en ákaflega trygglyndur og næmari en nokkurn grunar í rúminu- Skynhneigður og ástríðufullur elskhugi
    - Eigingjarn og jafnvel leynilega sadískur í rúminu ef hann treystir og tengist náið elskhuga sínum
    - Öfgafullur, allt eða ekkert í rúminu
    - Afbrýðisamur ef elskhugi gefur sig ekki allan í rúminu
    - Þegar sporðdrekinn er ástfanginn getur hann verið kynþokkafullur með afbrigðum
    - Hann er fæddur til kynlífs og valda og það á einnig við í rúminu
    - Kröfuharður og lostafullur og kýs að hafa umhverfið á sömu nótunum (stórt og mikið rúm og silkirúmföt)
    Bogmaður(22.nóv - 21.des)
    Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður semer og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum oghugsjónum.
    - Einlægur- Hreinn og beinn
    - Fyrir honum er kynlíf hátíð
    - Í kynlífsfélaga sínum leitar hann að félaga og samferðaelskhuga
    - Harðbrjósta, tilfinningalaus (ónærgætinn)
    - Heiðarlegur og lætur ekki bjóða sér neitt undirferli
    - Hann hefur mikla þörf fyrir stöðuga örvun í ástarsambandi
    - Hann lætur oft slag standa með ókunnugum og hefur elt margar myndarlegarmanneskjur sem hann er hrifinn af á röndum(gefst ekki upp)
    - Sterkt fegurðarskyn hans gerir hann að stórkostlegum félaga í ástarleikjum.
    Steingeit(22.des - 19.jan)
    Kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar en þeirfullnægja aldrei þörf hennar fyrir veraldlega viðurkenningu í rúminu
    - Kynlífsglatt stjörnumerki
    - Steingeitin er raunsæ og rómantísk í rúminu
    - Kýs hæfileikaríkan elskhuga með sterkt ímyndunarafl
    - Stekkur aldrei inn í ný sambönd án langs undirbúnings
    - Þegar steingeitin elskar loksins, elskar hún ákaft og af öllu hjarta
    - Auðsærð í rúminu
    - Er sjálfri sér næg í rúminu en leitar samt verndar sem hún finnur í góðusambandi þar sem jafnvægi ríkir- Þarf ást en óttast um leið sársaukann sem hún kann að valda
    - Kynþokki hennar vex með aldrinum og sömuleiðis leikirnir sem fram fara írúminu
    - Gott úthald í rúminu

    Fjola posted@ 12/15/2005 03:52:00 e.h..

    $$$$$$$$

    Comments: Skrifa ummæli

    Tenglar


    Viktoría
    Eyja Peyja
    Guðný Birna
    Ríkey
    ZhaWorldTrip
    Guðný Nielsen
    Fjóla
    Sylvía
    Gréta

    Annað


    Vélin
    Maximus
    Google
    Að tjá sig

    <