Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
föstudagur, september 29, 2006
Það var ákveðið í gær án athugasemda að færa óvissuferðina til laugardagsins 4.nóvember.
Ákveðið var að óvissuferðin væri einnar nætur ferð og gist nálægt borginni. Ef þið hafið aðgang að bústað þessa helgi þá endilega látið óvissunefndina vita. Varðandi kostnað var 5.000 kr talið vel sloppið og 10.000 kr of mikið. Í óvissunefnd eru: Sylvía, Gréta og Sigrún Lilja. Sigrun Lilja posted@ 9/29/2006 03:33:00 e.h.. $$$$$$$$ miðvikudagur, september 27, 2006Sigrun Lilja posted@ 9/27/2006 09:23:00 f.h.. $$$$$$$$ mánudagur, september 25, 2006
Jæja, það er búið að útkljá málið varðandi staðsetningu næstu Saumavélar. Það verður saumaklúbbur hjá mér á Sólvallagötu 29, fimmtudaginn 28. september kl. 20.
Hef því miður ekki almennilega yfirsýn yfir hverjir eiga að koma með kökur eða gos... en með því að styðjast við síðustu færslu (fyrir saumó hjá Guðbjörgu) og snúa því við fæst: Kökudeildin: Ríkey, Fjóla, Eyja, Guðný B., Margrét (Bætti mér í kökudeild þar sem ég hef ekki mætt með köku lengi...) Gosdeildin: Guðbjörg, Rakel, Sigrún L., Gréta, Eyrún Hlakka til að sjá ykkur! Margret Maria posted@ 9/25/2006 10:40:00 f.h.. $$$$$$$$ föstudagur, september 22, 2006
Dömur, dömur!
Hafið þið heyrt af vestfirsku Saumavélinni okkar? Hún er í einangrun í Sverige!!! Þetta er kreisíness. Hún hefur ekki internetaðgang þarna, en Bjarki setti póst inn á blogg vestfirska vinkonuhóps Dóru: Ísvélina Þetta var póstað fyrir þónokkru, veit ekki hvort það er búið að fréttast. Knús, knús frá frískri Saumavél í Tókýóborg. Nielsen posted@ 9/22/2006 07:07:00 f.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, september 19, 2006
Sælar
Hvað segið þið, þurfum við ekki að fara halda einn saumaklúbb? Guðný Birna og Margrét hvað segið þið? Mig langar nú að skoða nýju íbúðina hennar Guðnýjar en kaffið hennar Margrétar heillar líka? Sigrun Lilja posted@ 9/19/2006 02:16:00 e.h.. $$$$$$$$ sunnudagur, september 03, 2006Haustferð saumavélarinnar er nú í fullum undirbúningi (he..eeemmm). Undirbúningnefndin óskar eftir nefndarfulltrúum (minnir að Rakel hafi boðið sig fram). Þann 6-8 október (önnur helgin í október) varð fyrir valinu smbr. síðustu kosningar. Þá höldum við með nesti og nýja skó á vit nýrra ævintýra. Nú þó svo að þetta sé óvissuferð þá hafið þið nú sitthvað til málanna að leggja og þurfum "við" í nefndinni að sjá hvað margar komast og finna út kjöraðstæður fyrir sem flestar. 1. Hversu langa viljið þið hafa ferðina? (heilan dag) (Eina nótt) (tvær nætur) 2. Hvernig stíl? (heilsusamlega ferð þar sem þið komið endurnærðar til baka) (Blindafyllerí) (eitthvað þar á milli) 3. Hvað má ferðin kosta? Nú er hér með opnað fyrir ferskeytlur: Komið nú með ,,komment" í kosningar eru hafðar Hvert verður haldið í óvissufrí? Hvar verða lokkar lafðar? sylvia posted@ 9/03/2006 02:24:00 e.h.. $$$$$$$$ |
Tenglar
Annað |