Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
mánudagur, nóvember 13, 2006
Jæja elsku Saumavélar.
Nú er dagur nr. 256 í jólatilhlökkunargleði Guðnýjar 2006 senn liðinn, allavega hér í Tókýó. Margar ykkar vilja líklega ekki hefja jólastemmninguna fyrr en 1. desember, en... við erum ekki Saumavélar fyrir ekki neitt! Skipulag er okkar fag!!! Erlendar Saumavélar fara brátt að láta sjá sig á kærri fósturjörðinni og til þess að tryggja að sem flestar Saumavélarnar - og ég innilega vona ALLAR - komist í jólaSaumavélina þetta árið skulum við hefja skipulagninguna. Upp hafa komið hugmyndir að hafa hana í stærra sniðinu, þ.e. að hafa alvöru matarboð, og verð ég að segja að þar held ég að Saumavélin geti sannað stórkostlegheit sín og snilli á enn nýju sviðinu :) Þetta krefst allt mikils undirbúnings, og er ég tilbúin að sjá um að halda utan um þetta... svona þar sem ég verð í löngu jólafríi þetta árið. Ég myndi þó þakklát þiggja hjálp annarra tiltækra Saumavéla. Aðalatriðið í skipulaginu er augljóslega tímasetningin. Svo, nú kalla ég á allar Saumavélarnar að taka fram dagbækurnar sínar og saman getum við ákveðið dagsetninguna sem fyrst. Ég vil stinga upp á laugardagskveldi. Sjálf verð ég mætt á svæðið að kveldi 8. desember og ég veit að Dóra kemur að viku liðinni, föstudaginn 15. desember, og stefnir á að vera í stórborginni þá helgina. Hvað finnst ykkur þá um laugardagskvöldið 16. desember? Þá eru 8 dagar til jóla og stressið í hærra lagi (þó ekki alveg búið að ná risi), en það vegur upp á móti að meiri hluti erlendra Saumavéla er þá líklega/vonandi komið til landsins. Hvenær komið þið hinar útlensku Sewing Machines? Jæja, látið nú skoðanir ykkar í ljós kæru Saumavélar. Þúsund knús frá Djapan! Nielsen posted@ 11/13/2006 09:29:00 f.h.. $$$$$$$$
Comments:
Skrifa ummæli
|
Tenglar
Annað |