Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
fimmtudagur, desember 27, 2007
Gleðileg jól!
Þá er komið að því, jólasaumavélin í ár verður haldin með suðrænu og seiðandi ívafi. Leggjum við Fjóla til að þær sem ætla að koma með drykkjarföng mæti með Corona eða tekíla. Það á vel við að mæta með áramótahatt og eitthvað húllumhú! - en það allranauðsynlegasta er náttla jólapakkinn fyrir pakkaleikinn. Ég get glatt ykkur með því að í húsakynnum mínum er eitt lítið sætt jólatré þar sem pakkarnar munu fara undir. Ég hlakka svo til....hlakka alltaf svo til...og tíminn svo lengi að líða... sjáumst kl 20.00 sylvia posted@ 12/27/2007 09:41:00 f.h.. $$$$$$$$ mánudagur, desember 24, 2007
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Hafið það sem allra best um jólin :) Rikey Huld posted@ 12/24/2007 10:45:00 f.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, desember 18, 2007
Ammæli ammæli !!
Þessi ofur skvís átti afmæli 15 des :D Til hamingju með afmælið ljúfan. Knús og kram Fjóla Fjola posted@ 12/18/2007 08:01:00 f.h.. $$$$$$$$ mánudagur, desember 10, 2007
Jólasaumó 2007
Herligheitin verð heima hjá Sylvíu fimmtudaginn 27. des. Kokkar kvöldsins verða Fjóla og Sylvía. Dagskrá Húsið opnar kl. 20:00 með fordrykk Borðhald hefst kl 20:10 Pakkaleikur kl 21:10 Dessert kl 22:00 Matseðillinn er leyndó :). Max verðgildi gjafar er 1000 kr. Hvað fangaðurinn kostar verður tilkynnt síðar. Vinsamlega kommetið og segið hvort þið komið eða ekki. Stuð og jólakveðjur Fjóla og Sylvía Fjola posted@ 12/10/2007 03:29:00 e.h.. $$$$$$$$ fimmtudagur, desember 06, 2007
Jæja dömur
talaði við Ríkey - þar sem við tvær virðumst ekki geta mætt á sama kvöldi - til þess að ákveða dagsetningu. Þar sem mér var fært einræðisvald í hendur vel ég þá dagsetningu sem ég kemst... en ekki Ríkey - sem mér þykir ofboðslega leiðinlegt. En, hún segist vera á leið í samkvæmi það kvöld sem hefur orðið fyrir valinu, en mögulega, ef það byrjar seint, getur hún kíkt á okkur. Svo... hér kemur það: Fimmtudagskvöldið 27. desember Nokkrar höfðu boðið fram húsnæði. Standa þau boð enn? Eða, eigum við að fara út að borða? Á jólahlaðborð eða venjulegt borð? Athugasemdumst nú! Hó hó hó Nielsen posted@ 12/06/2007 01:24:00 e.h.. $$$$$$$$ mánudagur, desember 03, 2007
Ég tók tillöguna hennar Guðbjargar og setti uppl. í excel. Látið vita ef eitthvað er rangt.
Tölurnar hér að ofan gefa í skyn að flestar séu lausar mánudaginn 17.nóv. og reyndar 20 nóv. Ég er með smá hugmynd: Hvað segið þið um að fara á tónleika Guðný Birnu ásamt því að gera e-ð meira fyrir eða eftir tónleikana? Sigrun Lilja posted@ 12/03/2007 06:45:00 e.h.. $$$$$$$$ |
Tenglar
Annað |